Þróun stjarna
Stjörnur hafa þróast, eða breyst með tímanum. Stjörnurnar sem að þú sérð, þar á meðal sólin hefur ekki verið eins og hún er í dag. (Hurd, 2002) Stjörnur verða til í geysistórum gas- og rykskýjum, einhvers staðar í vetrarbrautunum. (Sævar Helgi Bragason, 2003) Stjörnur myndast í stórum og köldum gas- og rykskýjum (sameindaskýjum) sem finna má á víð og dreif um vetrarbrautirnar. Þessi ský eru nógu köld og þétt til þess að atóm geti bundist saman og myndað sameindir. Við einhverja utanaðkomandi röskun byrjar skýið að dragast saman vegna þyngdaráhrifa og brátt myndast frumstjarna þar sem skýið er þéttast. Í frumstjörnunni eykst hiti og þrýstingur uns kjarnasamruni hefst í iðrum hennar sem myndar hita og ljós. Ár hvert verða til tvær til þrjár stjörnur í vetrarbrautinni okkar. (Sævar Helgi Bragason, 2012)